Blogg
3.9.2009
Í aðlögun
Við komum til Íslands seint um kvöld þann 18. júlí og gistum fyrstu nóttina á Hellubraut. Klukkan 5 um morguninn voru allir vaknaðir og ekki reyndist mögulegt að snúa sér á hina hliðina og taka auka lúr því spennan var svo mikil að komast á Mávahraunið. Við létum það bara eftir okkur og vorum mætt þangað klukkan hálf sjö um morguninn. Magnús var gríðarlega virkur og var búin að taka niður alla eldhúskassana og fleira til fyrir klukkan 8 um morguninn. Ég hinsvegar var frekar dofin og átti í mesta basli með að taka á móti og raða í skúffur. Strákarnir duttu á leik við nágrannadrengi og voru hæst ánægðir.
Svona leið fyrsta vikan okkar á Íslandi. Magnús í ýmisskonar tiltekt og framkvæmdum en ég sá um að kaupa í matinn fyrir töluverðar fjárhæðir, en maturinnn er svo ferskur og girnilegur. Sérstaklega allt þetta nýja íslenska grænmeti. Gott að fá kindakæfu, skyr, súrmjólk, flatbrauð og fleira hversdagslegt.
Í byrjun ágúst vorum við mætt til vinnu og strákarnir byrjuðu í skólanum í lok ágúst. Þeir eru hæstánægðir með skólann og eru búnir að kynnast mörgum krökkum. Meira hvað það eru margir krakkar hérna í Hafnarfirði, sérstaklega strákar fæddir árið 2000. Örn og Boggi leika mikið með Jóni og Helga frændum sínum og ná afskaplega vel saman.
Ásta mætti til Ingu og var mjög fljót að ná þeirri rútínu. Hún hefur mjög gaman af því að hitta krakkana. Núna er Ásta farin að borða kjöt og kartöflur í brúnni sósu, fisk og mikið grænmeti.
Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 18
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 20937
Samtals gestir: 7933
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 06:50:46
