Blogg

25.4.2009

Earth day

Við vöknuðum snemma í morgun til að mæta á dag jarðarinnar sem haldinn er hátíðlegur hjá Rainbow bridge skólanum í dýragarðinum.  Eins og vaninn er á Íslandi var spáin á báðum áttum hvort það ætti að rigna eða ekki.  Allir voru fegnir í morgun að sjá að sólin skein, jafnvel þó að töluverður vindur var. Boggi og Örn tóku þátt í þéttskipaðri dagskrá.  Boggi spilaði á gítar ásamt krökkunum í gítar class.  Örn tók þátt í mjög flottri kungfu sýningu.  Krakkarnir komu hlaupandi á harðaspretti og spörkuðu af öllu afli í púðann hjá kennaranum, báðir fætur frá jörðu.  Síðan sýndu þau ýmsar hreyfingar sem þau hafa lært í vetur og undir hljómaði "Everybody is Kungfu fighting" á fullu.  Eftir þetta söng Örn ásamt Kindergarten krökkunum lag um hafið.  Allir bekkirnir tóku þátt í að semja textann við lagið.  Að lokum söng Earth day kórinn nokkur lög, en Örn er búinn að vera að æfa með honum í vor.  Á meðan sátum við á picknick teppinu okkar með öl og gos og nutum lífsins.  Ásta er farin að vekja töluverða athygli og var mikið tekið af myndum af henni. Tveir kínverjar með stórar myndavélar voru grunsamlega spenntir yfir brjóstagjöfinni. Það var eins og þeir væru að bíða eftir að sjá í bert.  Mér gæti nú ekki verið meira sama.  Boggi komst svo í fótbolta með krökkunum í skólanum og kom lurkum laminn til baka.  Hann gat varla gengið og var skítugur upp fyrir haus.  Við þurftum því að skella honum í bað áður en við héldum í afmæli hjá Lív sem var 7 ára í dag.  Lára og Baddi héldu þessa glæsilegu garðveislu þar sem boðið var upp á grillað nautakjöt, risarækjur og kjúkling á pinnum, rjómakökur, íslenskar vöfflur, pizzur og fleira og fleira. Í heimsókn kom mjög svo skrítinn trúður sem skemmti börnunum.  Síðan héldu þau áfram að leika sér úti á róló fram á kvöld.    

Skrifað 25.4.2009 kl. 5:23 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.4.2009

Save the sharks

Ég var að koma af sýningu í skólanum þar sem kindergarten bekkirnir voru að fjalla um hafið og ýmislegt því tengt. Bekkurinn hans Arnar talaði um hákarla og var þar ýmis fróðleikur um þá, t.d. að þeir séu ekki mjög áhugasamir um að éta fólk og að það sé mjög sjaldgæft.  Örn missti af undirbúningi sýningarinnar út af Íslandsferðinni og fékk því það hlutverk að bjóða alla velkomna inn í stofuna.  Hann var klæddur í hákarlabúning og sagði við gestinga "save the sharks".  Þeir sem vildu taka af honum mynd fengu mjög flottan myndasvip enda vanur maður á ferð.  

Boggi er að vinna í öðru verkefni þar sem krakkarnir fjalla um mismunandi vistkerfi.  Boggi valdi gresjur með sérstakri áherslu á gresjur Afríku (savanna). Hann setti gras í kassa og klippti 2 trjágreinar sem hann stakk í kassann, í einu horninu lagði hann bláan pappír til að líkja eftir stöðuvatni.  Tálguðu dýrin sem Tóta gaf honum einu sinni frá Afríku komu að góðum notum og var krókódíll settur í vatnið en ljón, gíraffar og fílar á gresjuna.  Hann er dáldið seinn með þetta út af Íslandsferðinni svo við þurfum að taka á honum stóra okkar í kvöld og klára ritgerðina sem á að fylgja.

Á laugardaginn er "Earth day" þar sem þetta verður til sýnis.  Þar verður hægt að heimsækja bása sem foreldrar barnanna í skólanum útbúa frá hverju landi fyrir sig.  Venjulega höfum við tekið þátt enn núna var einhver leti í gangi svo við munum bara skoða hina básana þeim mun betur.

Strákarnir eru mikið úti í garði að skoða lífið þar.  Nokkrir froskar lifðu af veturinn og fiskarnir í tjörninni eru bara þó nokkuð hressir.  

Hér er nú sól upp á hvern dag og yndislegt veður.  Við Ásta skruppum í bæinn í gær að hitta Döllu og Eyju. Við Ásta erum enn á íslenskum tíma og eigum enn dáldið í land með að snúa okkur við, það er svona þegar maður þarf þess ekki nauðsynlega.  Best að fara laga stóra könnu af kaffi og drekka hana alla. 


Skrifað 22.4.2009 kl. 19:15 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.4.2009

Shanghai í sólskinsskapi

Shanghai tók á móti okkur með glampandi sól.  Ferðin gekk vel þrátt fyrir stopp í London.  Við fundum þennan fína pub og garðverslun þar sem við fengum okkur svo stóran hamborgara að við vorum södd alla ferðina.  Ég keypti þar bók um það hvernig á að rækta kál, ávexti og kryddjurtir.  Ásta er orðin ferðavön og kippir sér ekki lengur upp við flugtak og lendingu.  

Þeir tóku vel á móti okkur í vegabréfaskoðuninni í Shanghai eins og venjulega.  Barnafólk hefur forgang í Kína sem mætti gera í fleiri löndum.  Þeir eru líka mikla fljótari að koma töskunum á bandið heldur en í London. 

Mikið er nú heimurinn orðinn hraður.  Við innritunarborðið í Heathrow lentum við á afgreiðslumanni sem var á öðru tímabelti.  Hann var heilar 40 mínútur að afgreiða eina fjölskyldu og þurfti mikla hjálp frá hinu afgreiðslufólkinu.  Hann var afskaplega kurteis og kunni processinn alveg utanað en hver verkþáttur tók heila eilífð.  Þessi maður ætti frekar heima í huggulegri bókabóð í gömlum bæ.  

Örn var mjög spenntur að sína Xiao Cao tönnina sína en Ásta sefur enn svo fast þrátt fyrir að klukkan sé að verða 3.  Í hennar huga er ennþá nótt.  

Skrifað 16.4.2009 kl. 22:35 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 17
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 16
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 20929
Samtals gestir: 7930
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 19:28:48