Blogg
14.1.2009
Rólegheit
Hér er allt í rólegheitum. Við mamma sækjum drengina í skólann og þeir eru mjög ánægðir með það fyrirkomulag. Það er ansi kalt þessa dagana, frost á nóttunni. Við vonum öll að það snjói lítið eitt en það er sjálfsagt óskhyggja.
Helstu viðfangsefni eru að gefa brjóst, skipta á bleyjum, lesa, stara út í loftið, spjalla. Við gerum okkur dagamun með að baka og elda góðan mat. Um daginn bakaði ég ástarpunga í fyrsta skipti. Þeir heppnuðust ekkert rosalega vel en voru alls ekki vondir, bara ekki eins góðir og þeir geta verið.
Á laugardaginn gerðum við okkur ferð niður í bæ á meðan Magnús og Örn fóru í gítar og trompet tíma. Ég, amma og Boggi röltum um franska hverfið á meðan og skoðuðum okkur um. Ásta var í magapoka og steinsvaf allan tíman. Það var frekar kalt svo hún var inná mér og lopapeysa og úlpa yfir.
Um helgina ætlum við að kíkja í silkiverksmiðjuna í Suzhou ef veður leyfir.
Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 21
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 20900
Samtals gestir: 7923
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 02:04:10

