Blogg

25.8.2008

Flóð

Við vöknuðum við þrumur og eldingar í morgun, alveg rétt fyrir ofan okkur.  Svo byrjaði að hellirigna.  Magnús óð út til að ná í hjólin og strákarnir hoppuðu á bak frá tröppunum til að blotna ekki í fæturna.  Magnús hjólaði svo með drengina tvo í vatni upp að hnjám. Þeir voru auðvitað fyrstir í skólann.  Nokkrir skólabílanna komust ekki á leiðarenda og voru fastir í umferð í 5 klukkutíma. 

Næst reyndum við Magnús að fara til vinnu og eftir klukkutíma þóf snerum við heim á ný og ákváðum að vinna þaðan.  Á meðan Magnús hugaði að umferðaröngþveyti náði ég að banka létt aftan í sendiferðabíl þegar ég í ákafa mínum stökk út úr bílnum til að koma i veg fyrir að troðslukínverji færi framúr okkur.  Ég gleymdi nefnilega að setja bílinn i park og hann rúllaði áfram.  Þetta fór alltsaman stórvel, það sá ekkí á bílunum og í bílnum sem ég klessti á var líka þessi velmenntaða Kínverska kona sem sagði bara að allt væri í góðu lagi á þessari fínu ensku. Sjúkk maður.  

Magnús gerði svo tilraun númer tvo eftir hádegi að komast í vinnu en var komin heim á ný ettir klukkustund.  Það var bókstaflega allt stíflað í allan dag og frárennsliskerfi borgarinnar annaði ekki þessari gífurlegu rigningu sem hefur ekki verið meiri í 100 ár, 140 mm á klukkustund.   

Við sóttum svo strákana snemma að beiðni skólans og hafði Örn jafnað sig vel á bekknum og var hinn glaðasti þrátt fyrir mikinn grátur í morgun. 

Það er alltaf líf og fjör hérna í Shanghai.

Skrifað 25.8.2008 kl. 11:55 af

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.8.2008

Shanghai

Þá erum við komin aftur á Sunny Garden eftir langt ferðalag.  Virgin vélin var hálftóm þannig að við gátum legið flöt alla leiðina.  Eina sem skyggði á var innritun á Keflavík sem tók okkur klukkustund.  Hefði ég ekki tekið sjálf í taumana væri ég sennilega ekki komin til Shanghai.  Það var ekki nokkur maður að fylgjast með því að fólk sem ætti flug með Londonvélinni fengi að innritast.  Við vorum síðust í vélina. 

Góða veðrið tók á móti okkur en hitinn er aðeins of mikill fyrir minn smekk.  Þó mun minni hiti en þegar Magnus var hér í sumar.  Strákarnir fundu eðlu inni í eldhúsi og veiddu hana fyrir mig, hún var bara að éta flugur og ekkert við hana að sakast.  Menn eru búnir að vera dáldið þreyttir og uppstökkir í dag og nú er markmiðið að reyna að vaka til 10.  Magnús náði því ekki og sofnaði klukkan 8. Leikurinn milli Íslands og Spánar heldur manni kannski vakandi eitthvað áfram þó svo að það er ómögulegt að fylgjast með á netinu.  ruv.is má ekki senda út fyrir landsteinana og evrópustöðin ekki heldur, Kínverjarnir eru ekki að sýna leikinn.  Ég notast því við mbl.is sem uppfærir fréttir á 30s fresti. 

Strákarnir kíktu á bekkina sína í dag.  Örn var ekki alveg sáttur, fannst vanta fleiri stráka.  Lítil stúlka hún Bianca, klappaði honum blíðlega.  Ég vona að það rætist nú úr þessu hjá honum.  Boggi hinsvegar hitti gömlu bekkjarfélaga sína og var glaður í bragði í 10 manna bekk með 2 kennara.

Skrifað 22.8.2008 kl. 12:51 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 18
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 21
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 20740
Samtals gestir: 7888
Tölur uppfærðar: 12.3.2010 22:56:19