Blogg

23.9.2007

Óðurinn til gleðinnar

Í gær tók ég þátt í flutningi níundu sinfóníu Beethovens.  Shanghai International Festival Chorus stóð fyrir flutningnum enn fékk til liðs við sig kínverskan kór, Pudong New District Chorus og sérsta gesti, Schola Cantorum frá Oxford University.  Hljómsveitin samanstóð af hljóðfæraleikurunum frá Shanghai og Beijing.  Stjórnandinn Nicholas Smith hefur lagt mikið á sig til að kynna klassíska tónlist Evrópu fyrir kínverjum.  Hljóðfæraleikararnir eru mjög færir og geta spila hvað sem er en þar sem að vestræn tónlist er ekki þekkt í Kína þá hafa þessir ungu tónlistarmenn ekki alist upp við hana og því er túlkunin oft ekki spennandi.  Nicholas er búinn að vinna náið með hljómsveit sinni í Beijing en hefur ekki komið sér upp eins góðri sveit í Shanghai.  Það var því töluvert óöryggi í hljómsveitinni, sérstaklega tréblástursdeildinni sem skyggði á að einhverju leiti.  Kórinn kom þeim mun sterkari inn og bjargaði sjóvinu með kröftugum og skýrum söng.

Tónleikarnir voru haldnir í Shanghai Oriental art Center sem er glæsileg tónleikahöll á Pudong.  Sérstaklega er hún falleg á kvöldin þegar hún er upplýst.  
   

Þetta er stærsti flutningur sem farið hefur fram í húsinu og voru ekki einu sinni nógu margir stólar fyrir okkur.  Þetta verður svo toppað næsta haust þegar Requem Verdis verður flutt. 

Magnús mætti með drengina okkar tvo á tónleikana.  Þeir voru klæddir í gallabuxur, Crocks gúmmískó, havaí skyrtur og Kínajakka yfir alltsaman.  Mjög kúúl eða Fusion eins og Magnús kallar það.  Ég heyrði hvíslið í Erni í fyrsta og öðrum kafla en hann spáði mikið í hljómsveitarstjórann og hvernig hljómsveitin og kórinn vissu hvað ætti að gera þegar hljómsveitarstjórinn væri bara að sveifla höndunum.  Í þriðja kafla sofnuðu svo báðir og misstu alveg af mömmu sinni að syngja.  Þeir sáu mig þó ganga inn á sviðið og Boggi sagði með stolti að ég hafi verið sú eina með rautt hár.

Skrifað 23.9.2007 kl. 4:12 af

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.9.2007

Veðurfar

Búið er að spá appelsínugulum fellibyl í Shanghai.  Í dag hefur verið hellirigning og allar hraðbrautirnar voru stappaðar.  Við ákváðum því að bregða út af venju og fara aðra leið heim sem reyndist auð.  Engin skóli verður á morgun út af þessu drengjum til mikillar ánægju.  Þetta minnir mig á Hong Kong þegar fellybyljum var spáð aðra hverja viku og skólum lokað.  Yfirleitt var engin ástæða til og fellibylirnir sveigðu framhjá borginni.  Eitt skiptið svar spáð svörtum byl og vorum við mamma einar með drengina og Magnús í útlöndum.  Við fórum að leiðbeiningum yfirvalda, héldum kyrru fyrir og byrgðum okkur upp af hrísgrjónum og vatni.  Svo varð ekki neitt úr neinu.  í annað skipti tókst okkur Magnúsi að sofa af okkur einn bylinn sem skall á Hong Kong og suður Kína nóttina áður en við lögðum af stað í ævintýraför okkar með lest frá Hong Kong til Shanghai.  Sá bylur olli miklum aurskriðum sem seinkuðu lestinni okkar um sólahring.  Þegar við svo lögðum af stað sáum við vesalings fólk upp á húsum sem voru hálf í kafi.  

Bogga finnst rigning og rok ákaflega spennandi veður og vill fara út að leika sér.  Xiao Cao á bágt með að skilja það.  Í Kína eru börn höfð inni í rigningu.  Ég reyndi að útskýra fyrir henni að á Íslandi látum við sko ekki smá rigningu stöðva okkur og að hvert barn leiki sér úti frá unga aldri hvernig sem viðrar. Þá sagði Xiao Cao að í okkar garði gerði það enginn og furðaði sig á því að Boggi vildi vera öðruvísi. 

Það er mikill félagsskapur í kringum Bogga og eru nú yfirleitt 3 krakkar í slagtogi við hann.  Edward kanadískur kínverji, Armin frá Indlandi og Maxine.  Örn leggur mikinn metnað í að vera með þeim og vill alls ekki sjá litla krakka, þ.e. á sínum aldri.  Frekar vill hann þá vera einn með sjálfum sér. 

Strákarnir eru báðir byrjaðir í Kungfu og eru mjög spenntir.  Eitt kvöldið var nágranni okkar að æva sig í Kungfu með flottu sverði.  Boggi fékk að prófa og fékk leiðsögn.  Það er mjög skemmtilegt að fylgjast með Kínverjum, þeir eru duglegir að iðka líkamsrækt hvar sem er.  Í dag sá ég konu á skrifstofuhæðinni okkar ganga mjög undarlega.  Stundum gengur fólk afturábak í smástund. 

Til að ýta enn frekar undir Kungfu áhugann þá keypti Magnús nokkrar Kungfu myndir í svipuðum stíl og "Crouching tiger hidden dragon". 

Skrifað 18.9.2007 kl. 11:02 af

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.9.2007

Réttarkerfið

Okkur leist nú ekkert á blikuna þegar ekkert hafði heyrst frá Magnúsi kl. 16 í dag.  Þá var hann búinn að vera 3 tíma á löggustöðinni.  Linda og Freda fóru með honum til halds og trausts.  Eftir heilmikið þref var löggan komin með nóg og sendi hlutaðeigandi út á gang til að settla sín mál.  Hún sagði að ef þau kæmust ekki að niðurstöðu í dag myndi hún taka ökuskírteinin og geyma þau í 10 daga.  En allavega Magnús og konan áttu í einlægu samskiptum eftir að löggan setti þeim þennan afarkost.  Magnús viðurkenndi að hafa verið skíthræddur við hana þegar hún kom æðandi að bílnum og sagði henni frá því þegar kvennkyns taxabílstjóri réðist á mig.  Hún mildaðist öll við það og sagði að það væru ekki allir kínverjar vondir.  Þrátt fyrir að Magnús var jú í rétti í árekstrinum vóg það þyngra að hann færði bílinn frá gatnamótunum.  Konan vildi fá 800 RMB fyrir viðgerðinni á bílnum en þá sagði löggan að 600 væri alveg nóg fyrir hana.  Hún yrði bara að borga afganginn sjálf.  Þetta var þó allavega smá bót fyrir Magnús ræfilinn sem var nú kominn með skottið á milli lappanna. 

En þegar allt kemur til alls þá var Magnús samt sem áður ánægður að fylgja málinu eftir og gefast ekki upp.  Auðvitað hefði verið auðveldara bara að borga strax og sleppa frá þessu.  Við erum einhverju nær um kínverska réttarkerfið.  Löggan reyndist ágætur sáttarsemjari og vildi ekki vera of vond við útlendinginn (e. alien). 

Næst þegar við lendum í árekstri munum við stöðva bílinn og taka myndir.  Einnig munum við kríta á götuna með offical krít.  Freda er búin að lofa því að koma slíka krít í vinnuna en mamma hennar var einu sinni bílstjóri og er eigandi að krít síðan þá.  

Hér má sjá gatnarmótin sem Magnús átti að stoppa bílinn og kríta litla stund.  Hún var auðvitað tekin með sem sönnunargagn nr. 3.

Skrifað 14.9.2007 kl. 11:48 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.9.2007

Kínverskt nudd

Í morgun lenntum við í árekstri, ef áresktur skyldi kalla.  Þetta var nú bara smá nudd.  Afleiðingarnar voru þó öllu meiri því Magnús stóð í stappi í marga klukkutíma við kellu.  Við vorum rétt að komast yfir erfiðustu gatnamótin á leiðinni í vinnuna þegar kerlingarálft tróð sér upp við hliðina á bílnum okkar svo langt að hún festist að lokum.  Magnús neyddist til að bakka til að losa bílana.  Okkar bíll rispaðist smá en Santana 2000 sem keyrði á okkur reyndist ekki vera úr mjög góðu efni og gaf því hliðin töluvert eftir. Þar sem við vorum enn á gatnamótum kom í okkar huga ekkert annað til greina en að keyra burt af gatnamótunum og koma okkur fyrir á rólegri stað áður en við færum að eiga við þetta.  Kerlingin í bílnum var nú ekki sátt við það og var þess fullviss að við værum að flýja af vettvangi.  Hún kom sér því fyrir fyrir framan bílinn okkar þar til við gátum sannfært hana með hjálp Fredu sem nú var komin okkur til hjálpar um að færa bílinn til.  Við höfum heyrt sögur af því að útlendingar sem lendi í slysi séu alltaf í órétti, jafnvel þó að þeir séu í rétti.  Því veldur skortur á kínverskukunnáttu eða kannski það að það er auðvelt að plokka af þessum útlendingum peninga.  Enn nei, ekki í þetta skiptið.  Magnús kallar ekki allt ömmu sína eftir veru sína hérna í Kína og var alveg harðákveðinn í því að gefa ekkert eftir.  Vinnufélagar okkar þrír margreyndu að fá hann til að láta kerlinguna hafa 1000 RMB (ca 10.000) og settla málið en Magnús stóð fastur á sínu.  Hann er í rétti.  En málin lyktuðu sem sagt með því að Magnús ásamt kerlu eiga að mæta á morgun á löggustöðina.  Magnús er búin að gera greinargerð um áreksturinn og teikna skíringarmyndir.  Einnig tók hann myndir sem sanna það að okkar bíll var kyrr þegar á nuddinu stóð en hennar bíll hreyfðist. 

Nú verður spennandi að sjá hvernig á málum verður tekið á morgun. 

Ég læt ykkur vita. 

Skrifað 13.9.2007 kl. 9:18 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.9.2007

Veislur og vín

Helgin var afskaplega viðburðarík.  Á laugardag og sunnudagsmorgun var fótbolti hjá Bogga. Hann er orðinn mjög einbeittur í boltanum og miklu betri enn í fyrra þegar hann lá í grasinu og skoðaði pöddur.  Hann hefur verið að æfa sig í skólanum með bekkjarfélögum sínum.  Það var ekki þurr þráður á Bogga eftir leikinn.  Á meðan sat Örn heima með pabba sínum og kubbaði legóbíl með hringslöngu þannig að bensínið færi hring eftir hring og kláraðist aldrei að hans sögn. 

Um miðjan daginn var kóræfing hjá mér á veitingarstað í háhýsi á Pudong.  Veitingastaðurinn snýst eins og Perlan og er frábært útsýni um alla borgina.

Á laugardagskvöldið var okkur boðið í elegant veislu hjá dönsku vinum okkar, Lenu, Thomasi og Oliver.   Þau buðu ýmsum vinum og vinnufélögum ásamt börnum.  Lene og Thomas fengu ítalskan kokk í hús sem bar fram smárétti og eldaði svo nokkra pastarétti eftir því sem leið á kvöldið.  Við drukkum eðalvín með matnum.  Drengirni léku sér fram á nótt. 

Á sunnudagseftirmiðdaginn fórum við í grill til Láru og Badda ásamt hinum íslensku barnafjölskyldunum.  Þetta eru alls orðnir 8 krakkar á svipuðum aldri og ná þau vel saman.  Kjartan mætti með tölvuleikinn Guitar Hero sem sló algerlega í gegn.  Hann er þannig gerður að maður á að spila gítarsóló á gervigítar um leið og lagið spilast í sjónvarpinu.  Þetta er ansi erfitt jafnvel fyrir þaulreynda gítarleikara eins og Magnús og það dugir ekkert annað en alger gítar fílingur. 

Fyrst ég er að rifja upp þessar fínu veislur þá er vert að nefna aðra sem okkur Magnúsi var boðið í í síðustu viku.  Það var hún Linda á skrifstofunni sem bauð okkur á opnun Napa Valley vínbúðar.  Þarna var allt VIP lið Shanghai saman komið, Konsúll Bandaríkjanna og Ástralíu og guð má vita hvað.  Frábærar veitingar og umfram allt eðal vín, t.d. hvítvín með gullflögum.  Við Magnús bonduðum við vínframleiðandann, aðal manninn á svæðinu og hann bauð okkur að kíkja í heimsókn á búgarðinn sinn í Napa Valley og "open a bottle or two".  Magnús tók hann á orðinu og ætlar að kíkja á hann við fyrsta tækifæri.  Ég spjallaði við konuna hans sem var hrædd við að senda manninn einan til Íslands þar sem konurnar þar þykja svo fallegar.  Þegar leið á kvöldið var Magnús orðinn hinn hressasti og kjaftaði af honum hver tuska, þar á meðal við Svissneskan management ráðgjafa og ástralsk/kínverska fjárfestingabankamenn. Ég þurfti að draga Magnús heim að lokum þar sem Boggi var farinn að hringja og var ei sáttur við hvað við ílengdumst.  Við teljum miklar líkur á að af okkur birtist myndir í Shanghai Tatler sem er Séð og Heyrt Shanghai búa.  Til þess að það gerist þarf maður annað hvort að vera óhugnarlega ríkur eða útlendingur.  



  

Skrifað 11.9.2007 kl. 11:59 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 12
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 19
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 20837
Samtals gestir: 7907
Tölur uppfærðar: 17.3.2010 19:31:47